|
|
16.03.2006 19:21:30 / Bollurass
Ég held að ég sé búin að komast að því að DDV hentar mér því miður
ekki. Það þýðir samt ekki að ég sæ hætt, langt því frá. Ég er
nýbúin að fá mér kort í Laugum og það er alveg frábært að hreyfa
sig loksins almennilega aftur, skokka, lyfta ... Fara eins langt og
ma'ur kemst, finna líkamann tonast og styrkjast, sjá þolið aukast í
hverri æfingu og virkilega vera sáttur og finnast maður hafa verið
duglegur. Ég fór aðeins eftir skóla áðan en entist ekki legni vegna
þess að ég var í ómögulegum fötum og ég hafði gleymt brúsanum
mínum. Ég ætla aftur í kvöld og taka vel á því (áðan var ég bara
tæpan hálftíma í brennslu). Annars er þessi dagur búinn að vera
alveg frábær, í morgun keypti ég miða til New York um páskana 
New York hefur alltaf verið "drauma borgin" mín og ég get rétt
ímyndað mér hvað það verður geðveikt að versla fyrst ég er búin að
ná ða grennast. Samkvæmt seinustu mælingu í World Class sem var á
mánudaginn fyrir viku þá er ég búin að léttast um 16,2 og
fituprósentan var 27. Ég ætla að vera geðveikt dugleg í þennann
mánuð áður en ég fer. Jæja farin í ræktina
»
19.02.2006 16:27:43 / Bollurass
Í seinustu viku fór ég upp um 200 gr sem er ekki alveg nógu
gott, stend mig bara betur þessa viku.
Í gær kláraði ég Afs umsóknina og mun skila henni í þessarri
viku.
Annars er mikið stress í gangi og ég held að það hægi á öllu,
Kristín sagði það allavega einhvern tímann.
Annars er allt á ágætu róli, ég hef bara ekki verið í neinu blogg
stuði.
Gangi ykkur vel 
»
09.02.2006 18:03:24 / Bollurass
Var að koma úr viktun og það fór 1 kg á 2 vikum. Allt sem er
niður er gott og hálft kg á viku er fínt, allavega að mínu mati.
»
25.01.2006 18:58:47 / Bollurass
Þessa vikuna fóru 400 gr og ég er nokkuð sátt með það, viktin er
allavega að mjakast niður en ekki upp. Samtals í DDV eru þá farin
10.4 og í heildina 17.5.
»
24.01.2006 23:55:15 / Bollurass
Þessi vika er búin að vera alveg ferleg, á allan hátt. Nenni
ekki að fara út í nein smáatriði. Það gerðist ekkert hræðilegt
heldur eru þetta endalausir ömurlegir smáhlutir sem eru að gera mig
brjálaða. Ég er ekki að afsaka mig heldur að reyna að útskýra
afhverju ég mun þyngjast í viktun á morgun, það er að segja ef ég
mögulega kemst (tímaleysi einn hluturinn sem er að gera mig
brjálaða). Á morgun ætla ég samt að borða alveg rétt.
Vegna þessarar ömurlegu viku og árshátíðarinnar sem verður 2.
febrúar (er búin að ákveða að ekkert
verður bannað þennann dag) þá verð ég eitthvað að
endurhugsa áfangana. Er að pæla í að hafa loka takmarkið 6. júní
því þá fer ég til Parísar.
Ég fór um helgina og keypti mér DDV ísinn í Hagkaup, er búin að
smakka súkkulaði og á eftir að smakka vanillu ísinn og pinnana. Mér
fannst ísinn nokkuð góður en finnst samt ísinn úr ísvélinni betri.
Samt frábært að eiga þetta til, bara til öryggis.
Er annars alveg að flippa fyrir árshátíðina, þetta er stærsti
dagur ársins og ég er ekki búin að finna neitt til að vera í.
Keypti einn bol sem ég get kannski notað ef ég finn fallegt pils og
svo vantar mig líka skó Er samt búin að panta
klippingu og litun og litun og plokkun (alveg furðulegt hvað hár
skiptir miklu máli! ) Ég sá eitt pils í glugganum á Kúltúr og leist
ágætlega á það,er ekki búin að máta en vonandi gegnur það. Annars
er ég farin að hlakka rosalega mikið til, herlegheitin byrja kl.
9 um morguninn og svo er stíft (en mjög skemmtilegt)
prógram allann daginn sem verður búin sirka 3-4 um nóttina og svo
er sem betur fer frí daginn eftir 
Gangi öllum vel í viktun næstu daga, vonandi betur en mér

»
18.01.2006 21:44:21 / Bollurass
Ég fór áðan í formlega viktun og ég var 2 kg léttari en í seinustu
formlegu viktun. Er nokkuð sátt með, sérstaklega vegna þess að í
þetta skiptið var ég í þykkri peysu og gallabuxum en seinast var ég
í þunnum buxum og þunnum síðerma bol og svo komu jólin og prófin
þarna inn í. Á morgun byrja ég á fullu og reyni að vera eins nákvæm
og ég mögulega get.
»
11.01.2006 20:56:18 / Bollurass
Nú er þriðji dagurinn og ennþá genur allt vel, nema það að ég
kom heim kl. 2 í gær og átti þá eftir tæpan 1 mjólkur skammt og 2
ávexti og ég ekki klárað nema annan ávöxtinn og mjólkina. Í
dag þurfti ég að slumpa á hádegis brauðsneiðina og kotasælu (náði
bara að finna til grænmetið í morgun). Það var samt nokkurn veginn
nákvæmt. Borðaði svo þvílíkt "djúsí" hamborgara og coke í kvöldmat
(á borgaranum var tómatsósa, grænmeti, 1/2 brauð og 2 kjöt og cokið
var að sjálfsögðu coke light, held reyndar að ég sé búin að drekka
1 glasi of mikið af því en ég drakk ekkert hvorki í gær né fyrradag
þannig að það er ekkert stór mál. P.S. ég fattaði ekki að ég
var búin með of mikið fyrr en of seint).
Ég prófaði að stíga á viktina í morgun og hún var farin
niður.
Ég hef verið að taka eftir því að það eru mjög margir með föst
skref í sínu átaki og ég ákvað að gerast hermikráka og setja mér
"millibils markmið" og hvenær ég ætla að
vera komin í kjörþyngd. Ég skelli því inn sem nýrri
síðu til vinstri þegar það er tilbúið.
»
09.01.2006 20:58:57 / Bollurass
Dagurinn í dag er búinn að vera 100% DDV. Mér líður
frábærlega og er þvílíkt fegin að vera að borða svona hollt.
Það sem er að bjarga mér er ég ákvað að láta gúrku telja sem
varð til þess að ég gat borðað hádegis- og kvöldmatinn án þess að
verða flökurt og illt í maganum af þessu svakalega magni.
Matseðill dagsins er:
MM: 30 g ristað brauð, 25 g ostur, 15 g sulta og 1 1/2 dl
appelssínu safi.
HM: lasagna og grænmeti
Snarl: banani og DDV kakó með 250 ml af undanrennu.
KM: 120 g lax, 300 g grænmeti, 75 g hýðis hrísgrjón
Snarl: Kakó úr restinni af mjólkinni og olíu í teskeið.
Ég skellti ísvélar skálinni í frystinn áðan og á morgun verður
ísveisla. Ég ætla að prófa uppskriftina hennar Súper-S og gera
súkkulaði ís og ég ætla að kaupa ber og smyrju og meira sætuefni og
fá mér piparmyntu-súkkulaði sósu. Hlakka til.
Stefni svo á að fara að æfa á miðvikudaginn, föstudaginn og
laugardaginn og svo á hestbak á sunnudaginn. Hef því miður engan
tíma á morgun og á fimmtudaginn 
Farin að fá mér heitt kakó og olíu. Mjög spes blanda.
»
05.01.2006 22:28:56 / Bollurass
Í morgun hafði ég þyngst um 1 kg sem er alveg ásættanlegt miðað
við hátíðarnar. Nú er nýr tími og léttingurinn ætti að fara aftur
af stað.
»
05.01.2006 00:08:44 / Bollurass
Jæja, núna er DDV mánuðurinn hafinn (klukkan er 7 mín yfir 12)
»
04.01.2006 23:09:30 / Bollurass
Jólin voru alveg frábær, ég át það sem mig langaði í og þrátt
fyrir að hafa talið upp vissa daga í bloggi í desember þá skipti ég
um skoðun og ákvað að njóta jóla matarins til fulls. Reyndi samt
aðeins að halda aftur af mér.
Ég var að ákveða að á morgun hefst einn DDV mánuður. Ég ætla
samt að hafa aðeins mínar reglur til að þetta henti mér betur, t.d.
ætla ég að láta gúrku "telja" sem grænmeti vegna þess að ég á
rosalega erfitt með að borða svona mikið og gúrkan auðveldar mér
það. Ef ég gæti myndi ég vera alltaf í DDV en því miður hentar það
ekki af ýmsum ástæðum sem ég hef talið upp áður (þeir sem lásu það
vita að þetta er ekki leti í mér). Semsagt er morgundagurinn
"detox" dagur og ég reikna með því að vera pirruð í skapinu og fá
hausverk. Reyndar er ég ekki alveg að velja besta tímann
vegna þess að morgundagurinn er ansi stór og langur. Ég fer í
skólann kl. 8 og er svo að vinna eftir skóla og kem ekki heim fyrr
en u.þ.b. 9:30. ég ætla líka að reyna að borða speltbrauð eins og
hægt er, það er miklu hollara og mér líður betur í maganum af
því.
Ástæða þess að ég er að taka eina DDV törn er sú að ég er komin
með ógeð á sætindum og svoleiðis vitleysu og vil losan við þetta úr
systeminu, eftir þennan mánuð sé ég til hvort ég tek lengri tíma
eða held áfram að borða hollt.
Ég er aðeins búin að kíkja á útsölurnar og áðan keypti ég mér
gallabuxur í Centrum. Þær voru á u.þ.b. 13.000 en voru komnar á
8.990. Þær eru geðveikt flottar, allavega að mínu mati. Eini
gallinn er að þær eru soldið þröngar, ég get ekki alveg rennt þeim,
það muanr ekki miklu en mig langaði bara svo mikið í þær og ég r
hvort sem er að grennast þannig að ég nota þær bara eftir 3 vikur
eða eitthvað svoleiðis. Annars er stefnan að finna spariskó (fann
enga fyrir jólin) til að vera í á Nemó (stærsti dagur ársins ef
maður er í Verzló).
Talandi um skólann þá var fyrsti dagurinn áðan og ég er
hrædd við stundatöfluna mína. Ég er í skemmtilegum fögum en þetta
er mjög massíf blanda og þetta verðu mjög erfið önn. Það er ekkert
fag sem er aðeins léttara, þau eru öll erfið.
Á morgun ætla ég að vikta mig um morguninn (í náttfötum,
búin að pissa en ekki borða morgumat). Sú tala verður
byrjunartala ársins og DDV mánaðarins. Ég er smá kvíðin en held að
þetta verði ekkert hræðilegt, er reyndar á túr en það hefur samt
ekkert alltaf áhrfi hjá mér, það þýðir hvort sem er ekki mikið að
horfa bara í vikuna, það verður á horfa á mánuð í senn til að fá
rétta útkomu.
Ég ætla líka að vera dugleg að fara að æfa, fara út með hundinn
og nota magabeltið og ég ætla að sjálfsögðu að gera fjölbreyttar
maga- og bakæfingar með. Annars vil ég þakka Paid fyrir góð
ráð varðandi það og óska henni til hamingju með
sinn árangur.
»
14.12.2005 19:43:21 / Bollurass
Nammi nammi nammi namm, fékk mér rétt dagsins á Manni lifandi og
hann var svo góður. Réttur
dagsins
Tælenskur kjúklingaréttur með kókos og grænmeti, kryddhrísgrjónum,
fersku blönduðu salati og appelsínu-rauðrófudressingu (tekið
af www.madurlifandi.is)
Það eina sem mér fannst ekki gott var dressingin á salatinu,
hún var með ediki eða balsamik sem mér finnst vera þvílíkur
viðbjóður. Annars mæli ég með þessu, gæti ekki verið mikið hollara.
Allt sykurlaust og lífrænt ræktað.
Hlakka til kl.10 þegr ég má nota magabeltið aftur, þetta er
furðulega skemmtilegt, skrýtið að vera að æfa magavöðvana og læra á
meðan. Að sjálfsögðu geri ég líka venjulegr magaæfingar líka, þetta
er bara auka 
Upplýsingar um slendertone flex max er að finna hér:
http://www.slendertone.com/en/flex_max/index.php
»
14.12.2005 16:59:56 / Bollurass
Dagurinn í dag er búinn að ganga mjög vel. Þegar ég vaknaði fór ég
út að labba/skokka með hundinn í u.þ.b. 20 mín (var orðið svo kalt
á eyrunum, var samt með húfu). Fékk mér þá morgunmat sem var
hafragrautur úr lífrænum höfrum, fjörmjólk og pínu salt, 2
mandarínur, 1 bolli grænt te og 1 vatnsglas. Fór svp og keypti mér
jólagjöf (amma og afi sögðu mér að velja) og ég valdi mér
slendertone flex max belti og er búin að nota það einu sinni og það
tekur vel á, furðuleg tilfinning að hafa þetta á sér, hálf kitlar
en samt ekki. Fékk mér svo 1 lítinn banana, 1 stóran tómat og
nokkrar ósaltaðar lífrænar pistasíuhnetur. Ætla svo að borða
kjúklingasalat með fullt af grænmeti og fræum í kvöldmat. Kannski
epli eða mandarínu í desert. Í dag er miðvikudagur sem er
vigtunardagruinn minn og í morgun stóð viktin í stað og það er
alveg ágætt, hef ekkkert getað æft alla vikuna nema kannski einu
sinni og mamma og pabbi voru úti og eitthvað rugl. Ég er búin að
vera að pæla hvað maður að að leyfa sér um jólin og ég held að það
sé ekki alveg raunhæft (allavega ekki fyrir mig) að ætla að sleppa
alveg sykrinum um jólin, það eru nú einu sinni jólin og meær finnst
allt í algi að borða soldið (ekki mikið, allt í hófi) af "jólamat"
sem inniheldur sykur. T.d. smákökur og konfekt, svoleiðis er bara á
borðum einu sinni á ári. Viss matur er líka partur af jólunum og ég
ætla alveg að fá mér eitthvað að öllum kræsingunum. Þeir dagar sem
verða ekki mjög strangir eru aðfangadagur, jóladagur og
gamlárskvöld. Svo getur vel verið að það verði aðeins meiri
afslöppun en þá ekki mikið.
»
08.12.2005 11:01:15 / Bollurass
Er búin að taka þá ákvörðun að viktin sem er heima hjá mér sé
sú sem ég fer eftir, við erum búin að eiga hana í nokkur ár þannig
að þetta er viktin sem sagði hæstu töluna þar seinasta vor og
tölu gærdagsins. Viktin er reyndar ekki stafræn (er með skífu)
sem er ekki alveg jafn nákvæmt en dugar alveg. Opinberir
vigtunardagar verða miðvikudagar um morgun, ekki búin að borða
morgunmat og í náttfötum.
»
08.12.2005 10:57:05 / Bollurass
Ákvað að tékka á b.m.i. stuðlinum mínum og hann er líka búinn að
lækka, orðinn 28.2, 11.2 kg í heilbrigði (24). Sem segir mér það að
þetta er allt á réttri leið. Annars eru mamma og pabbi að fara út í
dag og koma heim á sunnud. þannig að matarmálin verða eitthvað
furðuleg um helgina. Ég nenni ekki að elda (réttara sagt kann/get
ekki) þannig að ég mun lifa á jógúrti, skyri, djús og mandarínum,
líklega mest mandarínum.
Ég vildi að mandarínur væru alltaf til, þær eru svo góðar og ég
mundi alveg geta borðað allavega eina á dag allt árið en þar sem
það er ekki í boði ætla ég að reyna að vinna upp hina ellefu
mánuðina í desember 
»
Síður: 1 2 3 4
|
|